Mynd dagsins: Hjólreiðamenn athugið, þetta er bannað!

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti mynd á Facebook-síðu sinni í morgun sem vakið hefur talsverða athygli.

Í færslu sinni segir lögregla að vegfarandi hafi sent lögreglu myndina og lagt fram spurningu um hvort það væri löglegt að hjóla á miðri götu og valda umferðartöfum á vegi þar sem 50 kílómetra hámarkshraði er leyfður.

„Því er til svars að það er ekki heimilt að hjóla á miðri götu þar sem hámarkshraði er leyfður meiri en 30 km/klst. Samkvæmt umferðarlögum um sérreglur fyrir reiðhjól kemur fram að hjólreiðamaður skal að jafnaði hjóla í akstursstefnu á hjólastíg eða hjólarein eða hægra megin á akrein þeirri sem lengst er til hægri á akbraut sem er ætluð almennri umferð,“ segir lögregla í færslu sinni og bætir við:

„Annað ákvæði um sérreglur fyrir reiðhjól er ákvæði um að á vegi þar sem leyfður hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. er hjólreiðamanni heimilt að hjóla á miðri akrein, enda gæti hann fyllsta öryggis og haldi hæfilegum hraða. Þar sem að leyfður hámarkshraði er 50 km á klst. á Eiðsgranda þar sem myndin er tekin er því bannað að hjóla á miðri akrein.“

Vegfarandi sendi lögreglu meðfylgjandi mynd og lagði fram spurningu hvort það væri löglegt að hjóla á miðri götu og...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Föstudagur, 26. febrúar 2021