Mynd dagsins: „Hér hefur augljóslega átt sér stað mikill harmur“

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, birti skemmtilega mynd á Twitter-síðu sinni í gær.

Á myndinni, sem tekin er niður tröppur, má sjá að minnsta kosti tíu varúðarmerkingar þar sem fólk er hvatt til að gæta að sér þegar það gengur niður eða upp. „MIND YOUR STEPS,“ stendur stórum stöfum.

Stefán telur að þetta geti aðeins þýtt eitt og segir hann við myndina:

„Hér hefur augljóslega átt sér stað mikill harmur.“