Mynd dagsins: „Hér er verið að gera kláran til suðu svo­kallaðan „Ínureyktan“ lunda“

Eyja­maðurinn Páll Magnús­son sem er jafn­framt for­seti bæjar­stjórnar Vest­manna­eyja hitar upp fyrir her­leg­heitin um helgina með því að sjóða lunda. Gestir þjóðhátíðar eru gjarnir á að heimsækja heimamenn í hvítu tjöldin og fá að smakka á lunda og er ljóst að Palli ætlar að bjóða umm á nokkra Ínureykta eins og hann kallar það.

„Hér er verið að gera kláran til suðu svo­kallaðan „Ínureyktan“ lunda, sem er orðið sér­stakt hug­tak hér í Eyjum. Það þýðir að Ína Magnús­dóttir hefur reykt hann sem er mikill gæða­stimpill - því mörgum þykir hún kunna betur til þeirra verka en annað nú­lifandi fólk. Þessi lundi er að vísu úr Ysta­kletti en það verður ekki á allt kosið,“ skrifar Páll á Face­book og birtir þessa fal­legu mynd.