Mynd dagsins: Heiðrún Lind tók þessa mynd í maí 2018 – Sjáðu hverju Dagur lofaði þá

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, birti athyglisverða mynd á Twitter-síðu sinni í gær.

Á henni má sjá auglýsingu frá Samfylkingunni á strætóskýli fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar í maí 2018. Á auglýsingunni er mynd af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og textinn: „Leikskóli fyrir 12-18 mánaða.“

„Ég tók þessa mynd í fæðingarorlofi 16. maí 2018. Skemmtileg minning,“ segir Heiðrún en auglýsingin er ef til vill nokkuð kaldhæðnisleg því í dag, rúmum fjórum árum síðar, eru leikskólamálin í lamasessi í borginni og fjölmörg börn á aldrinum 12 til 18 mánaða sem ekki hafa komist inn á leikskóla.