Einar Bárðarson, almannatengill og lagahöfundur, birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í dag. Myndina má sjá hér að neðan.
Eins og flestir vita geta mávar verið nokkuð kræfir þegar kemur að ætisleit og eru þeir ófeimnir við að fara langt inn í mannabyggðir í þeirri viðleitni sinni.
Einar náði mynd af einum slíkum sem hafði komið sér kyrfilega fyrir á ruslatunnu, væntanlega í leit að einhverju ætilegu. Einar sneri hins vegar á hann með klókindum.
„Þessi varð alveg brjálaður út í mig þegar ég lokaði tunnunni sem hann var að toga ruslið upp úr og dreifa um alla götuna. Svo sneri ég tunnunum með bakið í vindinn svo vindurinn feykti lokinu ekki upp aftur. Hann er kúkar örugglega á bílinn minn í nótt hahaha,“ segir Einar sem er jafnframt afkastamikill plokkari og sem slíkur virkur í baráttunni gegn sóðaskap og mengun.