Mynd dagsins: Hand­tekinn án klæða í Austur­stræti – „Eins manns sýning í ó­þökk lög­reglunnar“

Mynd dagsins kemur úr helgar­blaði DV frá 7. mars 1987 er á­huga­ljós­myndarinn Jón Örn Bergs­son átti leið um Austur­stræti.

Hann festi á filmu afar sér­staka sýningu sem hann taldi í fyrstu að vær í­þrótta­sýning. „Fljóta­lega koma þó í ljós að þetta var eins manns sýning og hún í ó­þökk lög­reglunnar. Veg­far­endur kunnu þó vel að meta þetta fram­tak og hvöttu lista­manninn til dáða,“ segir í um­fjöllun DV.

Tinna G. Gígja birti myndirnar á Twitter um helgina og má sjá þær hér að neðan en það er ó­hætt að segja að sýning mannsins vakti mikla at­hygli á sínum tíma.