Mynd dagsins: „Halló, þarf ekki að handtaka einhvern strax?“

Umferðarskilti við Grensásveg vakti talsverða athygli á Twitter í gærkvöldi, en eins og glöggir lesendur sjá stendur Grensársvegur en ekki Grensásvegur á umræddu skilti.

„Halló, lögreglan. Þarf ekki að handtaka einhvern strax,“ segir Bergþóra Eyjólfsdóttir sem birti myndina á Twitter. Óvíst er þó hvort lögreglan geti gert eitthvað í málinu heldur snýr það væntanlega að starfsmönnum Reykjavíkurborgar að lagfæra merkinguna á skiltinu.

Myndina má sjá hér að neðan: