Hallgrímur Helgason rithöfundur birti ansi spaugilega mynd á Facebook-síðu sinni í dag sem tekin var úr hraðamyndavél á Akureyri.
Hallgrímur gerir létt grín að atvikinu á Facebook-síðu sinni en hann var myndaður á 57 kílómetra hraða, hvorki meira né minna, á Hörgárbraut í októbermánuði.
„Ljósmyndaþjónusta Lögreglunnar á Norðurlandi eystra er ekkert slor. Þótt gæðin mættu vera betri þá tókst henni sannarlega að fanga mómentið! Mæli með! Finnst 10.000 kr. vera hreint gjafverð fyrir þessa góðu mynd af okkur feðginum á Hörgárbraut kl. 20.51 þann 19. okt 2022, hraði 57 km/klst.“
Myndin vakti talsverða kátínu hjá vinum Hallgríms og Facebook og spurði til dæmis einn hvort hann hafi ekið of hægt. Annar spurði hvort hann hafi nokkuð verið kallaður í yfirheyrslu til lögreglustjórans Páleyjar Borgþórsdóttur vegna málsins.