Mynd dagsins: Halldór hittir naglann á höfuðið – Íslandsmeistaramótið í 100 metra lestri

Mynd dagsins að þessu sinni á snillingurinn Halldór Baldursson, skopmyndateiknari Fréttablaðsins. Umræðan um lestur barna í skólum var fyrirferðamikil í gær en leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir steig fram og gagnrýndi leshraðapróf sem sonur hennar í 3. bekk var látinn gangast undir.

Sjá hér: Ilmur snöggreiddist og reif blaðið í tvennt: „Ekki er þetta valdeflandi, svo mikið er víst“

Velti Ilmur því fyrir sér hvers vegna áherslan væri á að börnin gætu lesið hratt, en ekki að þau skyldu hvað þau væru að lesa.

„Hann les mjög vel, þegar hann les upphátt fyrir mig legg ég áherslu á að hann lesi fallega og að hann skilji það sem hann les. En það virðist ekki vera lögð áhersla á það í skólanum, bara að hann lesi hratt. Um daginn kom hann heim úr skólanum og rétti mér blað, ég sá á líkamstjáningunni að hann skammaðist sín. Á blaðinu var helvítis hraðalínuritið -sem hafði farið niður á við, honum hafði farið aftur. Ég snögg reiddist og reif blaðið í tvennt, honum brá en skömmin vék fyrir undrun. Ég reiddist vegna þess að ég hafði verið að hrósa honum fyrir framför í lestrinum deginum áður, hann er nefnilega farinn að lesa með tilfinningu, ég sé að hann kemur sjálfum sér á óvart þegar hann les og ég sé að hann eflist við það. Enda getur það verið mjög valdeflandi að heyra rödd sína hljóma,“ sagði Ilmur.

Halldór fangar þessa umræðu prýðilega með húmorinn að vopni í mynd á leiðarasíðu Fréttablaðsins í dag. Myndina má sjá hér að neðan: