Mynd dagsins að þessu sinni sýnir leiksvæði fyrir börn í Melaskóla sem gekk í gegnum ákveðnar breytingar í vikunni.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er um að ræða einskonar lúdóspjald í fullri stærð, en hönnun þess til að byrja með þótti minna óþægilega á hakakrossinn, sem oftar en ekki hefur verið tengdur við hinn alræmda nasisma.
„Nýr og endurbættur Melaskóli: nú með 100% minni nasisma,“ segir höfundur færslunnar og birtir meðfylgjandi myndir fyrir og eftir breytingu.
Hakakrossinn er sem fyrr segir oftast tengdur við nasismann en hefur í gegnum aldirnar einnig tíðkast í búddisma og hindúisma. Þá þótti merki Eimskipafélagsins eitt sinn minna óþægilega mikið á hakakrossinn.
nýr og endurbættur Melaskóli: nú með 100% minni nasisma. pic.twitter.com/p8m6TBr2iS
— Bjarki 🇵🇸 (@BjarkiStBr) August 27, 2021