Mynd dagsins: Hafnfirðingur fór með sjónvarpið í heita pottinn

Hafnfirðingar þykja úrræðagóðir með eindæmum og deyja sjaldnast ráðalausir, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

Það var prýðisgott veður á höfuðborgarsvæðinu um helgina og margir sem nýttu laugardaginn til útiveru. Eftir langan dag getur verið gott að slappa af í heita pottinum og hvað er þá betra en að horfa á einn góðan sjónvarpsþátt eða kvikmynd meðan legið er í pottinum?

Hringbraut fékk þessa mynd senda og sýnir hún Hafnfirðing á besta aldri slappa af í pottinum á laugardagskvöld meðan hann horfir á sjónvarpið. Hringbraut fékk góðfúslegt leyfi frá viðkomandi til að birta myndina og er hún því ekki tekin úr launsátri eins og einhverjir kynnu eflaust að halda.