Mynd dagsins: „Hafa fleiri lent í því að inn­réttingin fari að flagna svona?“

Mynd dagsins á grín­istinn Tómas Logi Hall­gríms­son nokkur sem birtir mynd inn á Face­book hópnum Skreytum hús af dular­fullri flögnun á hús­gagninu sínu.

„Hafa fleiri lent í því að inn­réttingin fari að flagna svona?“ spyr Tómas Logi og er nokkuð ljóst að kappinn spyr í gríni enda má sjá á myndinni að hér er um að ræða hlífðar­plastið. Þúsund manns bregðast við færslu Tómasar með bros­köllum og er mjög skemmt.

Þá láta við­brögðin í kommenta­kerfinu ekki á sér standa. „Er þetta ekki bara hlífðar­plastið?“ spyr fyrsti Face­book verjinn. Annar segir: „.....þú ert að grínast... er það ekki?...“ og lætur hlátur­bros­kall fylgja.

Þá fara mjög margir að grínast með Tómasi í málinu. „Þetta er nu bara utaf slæmri um­gegni, minar eru enn svona fagur­bláar eftir 10 ár,“ skrifar einn. Önnur segir: „Ég þekki eina sem rauk að skila..hafði ekki pantað bláa inn­réttingu,“ skrifar hún og merkir vin­konu sína í kommentinu.

Fleiri spreng­hlægi­leg um­mæli við þessa spreng­hlægi­legu færslu má lesa hér.