„Hér hefur textinn skolast til,“ segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, í færslu í Facebook-spjallhópi flokksins.
Þar bregður Gunnar Smári á leik með því að deila mynd af Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, en á myndinni segir Bjarni:
„Síðustu ár höfum við greitt upp skuldir og búið í haginn fyrir óvænt áföll. Þess vegna getum við tekist á við afleiðingar heimsfaraldursins af krafti.“
Gunnar Smári segir aftur á móti að textinn hafi eitthvað skolast til því þarna eigi að standa:
„Síðustu ár höfum við svelt öll grunnkerfi samfélagsins til að veikja þau og undirbúa undir einkavæðingu. Þess vegna skuldar ríkissjóður lítið og við getum ausið fé úr honum til ríkustu fjármagnseigenda og allra stærstu eigenda allra stærstu fyrirtækjanna. Sem munu nota aukin fjárráð til að gleypa smærri fyrirtæki og taka yfir grunnkerfi samfélagsins og innviði. Djöfulsins snillingar!“