Mynd dagsins: Guð­mundur Frank­lín með skot á Guðna

Guð­mundur Frank­lín Jóns­son for­seta­fram­bjóðandi skaut létt á Guðna Th. Jóhannes­son, sitjandi for­seta, með mynd sem hann birti á Face­book-síðu sinni í gær.

Á myndinni sést Guð­mundur Frank­lín gæða sér á girni­legri pítsu. Það væri vart í frá­sögur færandi nema fyrir það að við myndina skrifar hann: „Ahh pizza með ananas... mmmm...“

Það vakti at­hygli árið 2017 þegar Guðni Th. Jóhannes­son sagði að það ætti að banna ananas sem á­legg á pítsu. Guðni baðst síðar af­sökunar á um­mælum sínum og viður­kenndi að hafa gengið skrefi of langt.Guð­mundur Frank­lín virðist borða ananas með bestu lyst eins og með­fylgjandi mynd ber með sér. Í at­huga­semdum bendir einn á að Guð­mundur hafi greini­lega fengið nóg af ananas á sína pizzu. Því svarar Guð­mundur: „Ég bað um að fá ananas­skammtinn hans Guðna.“