Guðmundur Felix Grétarsson heldur áfram að njóta þess að vera loksins komin með handleggi eftir rúma tvo áratugi án þeirra en í nýjustu færslu sinni á Facebook deilir hann fallegri mynd af honum og eiginkonu sinni.
„Held utan um Sylwiu mína eins og „venjuleg“ manneskja,“ skrifar Guðmundur við myndina þar sem hjónin sjást skælbrosandi og virðast hæstánægð með lífið.
Guðmundur Felix komst loksins í sumarfrí fyrr í mánuðinum eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsi í rúma sex mánuði og virðist endurhæfingarferlið ganga vel.
Myndina má finna hér fyrir neðan.