Einar Bárðarson, almannatengill, lagahöfundur, umboðsmaður og þúsundþjalasmiður, er mikill húmoristi eins og þeir sem til hans þekkja vita.
Einar deildi samsettri mynd sem birtist við frétt á vef DV en þar var sagt frá nýjum útvarpsþætti Einars, Önnu Margrétar Káradóttur og Ingva Eysteinssonar á útvarpsstöðinni K100.
Þættirnir verða á dagskrá á laugardagsmorgnum sem er augljóslega nokkuð vinsæll hlustunartími í útvarpi. Á sama tíma eru þau Eva Laufey Kjaran og Svavar Örn Svavarsson með útvarpsþátt á Bylgjunni og Salka Sól Eyfeld með útvarpsþátt á Rás 2.
Fyrirsögn fréttarinnar var: Slagurinn um slottið hefst í fyrramálið og með fréttinni fylgdi samsett mynd af Svavari Erni, Evu Laufey, Einari Bárðar og Sölku Sól. Einar hefur húmor fyrir sjálfum sér og sagði á Facebook-síðu sinni:
„Guði sé lof að þetta er ekki fegurðarsamkeppni.“