Mynd dagsins: Grillaði sykurpúða við eldgosið

Það þarf ekki að koma mörgum á óvart að mynd dagsins að þessu sinni er tengd eldgosinu sem nú stendur yfir í Geldingadal. Hún er fengin af Facebook-síðunni Matartips af þræði þar sem spurt er "Hvaða pylsur/pulsur eru bestar á grillið" við mynd af pylsum yfir hrauni.

Í athugasemdum við þráðinn segir Jonathan Cano "Ég veit það ekki en sykurpúðar klikka aldrei" og deilir síðan mynd af sykurpúðum á grillteini sem hann heldur yfir glóandi hrauninu í Geldingadal, skammt frá stærsta gíg gossins.

Hér er myndin:

Mynd/Facebook/Jonathan Cano