Mynd dagsins: Grettir Adolf er nú meiri kallinn

„Þetta er hann Grettir Adolf, sem er mikill músa­veiðari. Hann hefur líka gaman að því að skemmta mann­fólkinu sínu með at­hyglis­verðum leiðum um hverfið,“ segir í býsna skemmti­legri færslu sem birtist í hópnum Kettir á Face­book í gær.

Það er í raun ó­þarfi að hafa mörg orð um mynd dagsins enda oft sagt að myndir segi meira en þúsund orð. Það á svo sannar­lega við í þessu til­viki.