Mynd dagsins: Göturnar skautasvell – Fyrir þá „sem vilja nagladekk í burtu“

Það voru margir ökumenn sem áttu erfitt með að komast út úr íbúðagötum á þessum fallega laugardegi, þar á meðal Sindri nokkur sem birtir þessa mynd úr Langholtshverfi:

sind.jpg

Hann segir: „Bara setja þessi út í kosmosið og fyrir Reykjavíkurborg sem vilja nagladekk í burtu. Þetta skautasvell er í Efstasundi og mun sennilega vera svona fram á vor. Að henda sandur í tonnatalið á götum minnkar ekki svifryk frekar bætir það í ef eitthvað.“

Það eru þó ekki allir á því að nagladekk leysi allt, eins og Mörður nokkur sem segir:

„Merkilegt samt hvað ég og allir hinir sem eru án nagladekkja komumst í gegnum veturinn án vandræða.“