Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk græddar á sig hendur í Frakklandi fyrr á þessu ári, er kominn til landsins og fær nú að halda á afastráknum sínum nýja.
Hann segir á Facebook: „Gettu hver heldur á glænýja afastráknum án aðstoðar?“
Á myndinni virðist fara ansi vel um litla krílið í fanginu á afa sínum í fyrsta sinn.