Það verður seint sagt að veðrið hafi leikið við landsmenn það sem af er degi. Töluvert hefur rignt á höfuðborgarsvæðinu og á sunnan- og vestanverðu landinu.
En það er betra veður í kortunum ef marka má spá Veðurstofu Íslands. Á morgun léttir til og gerir sjálfvirk spá Veðurstofunnar ráð fyrir 11 stiga hita og glampandi sól á höfuðborgarsvæðinu um miðjan dag á morgun.
Á miðvikudag verður svo líklega sól og blíða um allt land. Gert er ráð fyrir 15 stiga hita og sól í Reykjavík síðdegis á miðvikudag. Svipað verður uppi á teningnum á Akureyri og á Egilsstöðum. Þá verður vindur með hægasta móti um nær allt land.
Það eru kannski helst Vestfirðir og suðausturhluti landsins sem þurfa að sætta sig við að sjá ekki til sólar á miðvikudag. Ef horft er lengra fram í tímann má finna býsna góða spá laugardaginn 13. júní. Ef hún gengur eftir má gera ráð fyrir sólríku veðri um allt land um næstu helgi.