Það er alltaf líf og fjör á öskudeginum þegar ungmenni klæða sig í búninga og gera sér glaðan dag. Margir fullorðnir nota jafnframt tækifærið og láta skína í sitt innra barn.
Meðal þeirra er Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, sem fór í Súpermanbúning í tilefni dagsins.
„Hér er mynd af mér að drífa mig á öskudagsráðstefnu skóla- og frístundasviðs, þar sem ég veitti hvatningarverðlaun,“ segir hún. „Það var nb. ekki búningaskylda.. en það var ekki bannað heldur.“