Mynd dagsins: Fórnar­kostnaður þess að fá nýja hand­leggi

„Eins svalt og það er að vera kominn með nýja hand­leggi eftir 23 ár án þeirra, þá gerist það ekki án þess að færa á­kveðnar fórnir,“ segir Guð­mundur Felix Grétars­son.

Guð­mundur gekkst ný­lega undir hand­­leggja­á­græðslu í frönsku borginni Lyon og hefur hann dvalið á sjúkra­húsi að undan­förnu þar sem hann jafnar sig eftir hina flóknu að­gerð. Guð­mundur Felix heldur fylgj­endum sínum upp­lýstum um bata­ferlið á Insta­gram-síðu sinni og í gær birti hann nokkuð skemmti­lega mynd af hnakkanum á sér.

Eins og sést glögg­lega er kominn myndar­legur skalla­blettur sem rakinn er til mikillar legu Guð­mundar undan­farnar vikur. Ekki þykir þó ó­lík­legt að lyf sem Guð­mundur tekur eftir að­gerðina eigi sinn þátt í hár­losinu. Það er sjaldan langt í húmorinn hjá Guð­mundi sem skrifar á ensku: „I’ve lost a shit load of hair. I want my Mojo back.“