Mynd dagsins að þessu sinni birti Silja Björk Björnsdóttir á Twitter-síðu sinni og sýnir litla en nokkuð dæmigerða innkaupakörfu.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að matvöruverð hefur hækkað umtalsvert undanfarin misseri og finna fjölskyldur landsins fyrir því. Verðbólga hefur hækkað og þá hefur heimsmarkaðsverð á ýmsum nauðsynjavörum hækkað.
Silja Björk birtir mynd af nokkrum hlutum sem hún keypti í Nettó á dögunum og kostuðu þeir samtals tæpar 8.000 krónur, eða 7.639 krónur nákvæmlega.
Færslu Silju má sjá hér að neðan:
Næstum því 8.000 íslenskar krónur fyrir þessa örfáu hluti. Dýrast voeu 300 gr. af frosnum kjúklingabitum á 1.500 kr.
— Silja Björk (@siljabjorkk) March 29, 2023
Segið mér aftur hvernig heimili með tekjur vel undir milljón á mánuði, barn, bíl og húsaleigu á að safna sér 8-10 milljónum fyrir útborgun á fyrstu eign🙂 pic.twitter.com/I6EQYgQTwM