Mynd dagsins: Flokkur hinna ríku á ferð um landið

Mynd dagsins sýnir þingflokk Vinstri grænna eins og hann er skipaður í dag, en flokkurinn er nú á ferð um landið.

Fréttablaðið birti athyglisverðar niðurstöður nýrrar könnunar í dag þar sem fram kemur að fylgi flokksins nálgist nú hættumörk. Er fylgið nú nálægt 5 prósenta jöfnunar­sætis­þröskuldinum.

Það sem vekur einnig athygli er sú staðreynd að flokkurinn nýtur mests fylgis hjá hátekjufólki, eða einstaklingum með 800 þúsund í mánaðarlaun, eða 10 prósent. Hjá lág­tekju­fólki, með laun undir 400 þúsundum, hafa Vinstri græn að­eins 2 prósenta fylgi, minnst allra flokka.

Illugi Jökulsson birti af þessu tilefni „AÐEINS“ breytta mynd af þingflokki VG og auglýsingu flokksins vegna ferðar flokksins um landið dagana 13. til 15. febrúar.