Gul ökutæki Flokks fólksins vöktu mikla athygli í kosningabaráttunni í haust og kunna að hafa leikið hlutverk í kosningasigri flokksins. Það er ekki búið á mála þá alla og er enn hægt að sjá þá á ferðinni um borgina. Athugull vegfarandi í Kringlunni sá Saab-inn lagðan í það sem virðast vera tvö bílastæði, var birt mynd af því inni í Fésbókarhópnum Verst lagði bílinn, þar hefur málið valdið nokkurri úlfúð.

„Virka óvenjulega lítil stæði samt,“ segir einn og kemur ökumanninum til varnar.
Guðfinna tekur í sama streng:
„Mér hefur aldrei fundist eins óþægilegt að leggja innan línanna eins og þarna og undir Hamraborg.“
Jón var ekki sammála: „Ekkert af þessu réttlætir samt að leggja svona og taka tvö stæði og hvað þá um kvöldið þegar nóg er til af stæðum þarna í kring. Það var Range Rover Vogue þarna rétt hjá sem lagði í eitt stæði. Sýnir bara hversu þröngsýnn hugsunarháttur ykkar er ásamt viðkomandi.“
Már svaraði: „Gangi fólki vel að komast út úr bílunum með tvo í stæðinu, það er oft eins & fólk hérna inni hafi aldrei keyrt bíl...“
Haukur kom með lausn á vandanum: „Þetta væri betra sem eins manns fatlaðra stæði.“