Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu. Segja má að fjölgun hafi orðið í fjölskyldu ráðherrans og formanns Sjálfstæðisflokksins þegar lítill ferfætlingur bættist í hópinn.
„Síðustu misseri hefur Bó okkar staðið í stórræðum. Á gamals aldri þótti honum rétt að hefjast handa við barneignir og hefur nú eignast sjö hvolpa í tveimur gotum. Við vorum svo heppin að fá eitt afkvæmið í fjölskylduna, þegar Sushi litla flutti heim til Margrétar dóttur okkar á dögunum. Eins og sjá má er talsverður svipur með þeim feðginum,“ segir Bjarni og birtir æðislega mynd af Bó og Sushi.