Mynd dagsins: Fjar­stýringarnar hjá ömmu

Fjar­stýringar að sjón­vörpum og af­ruglurum eru bæði allt­of margar, allt­of litlar og allt­of flóknar. Því hafa margir fengið að kynnast og um það fjallar ein­mitt mynd dagsins á Hring­braut.

Net­verjinn Eli­as birtir hana á Twitter síðu sinni í dag í færslu sem hlotið hefur heil­mikla at­hygli. Þar birtir hann myndir af fjar­stýringum ömmu sinnar, sem hafa verið upp­færðar svo þægi­legra sé að nota þær.

Eins og sjá má er búið að teipa fyrir takkana á fjar­stýringunum sem enginn hefur nokkurn tímann notað. Þannig getur amma Eli­asar einungis notað takkana sem skipta raun­veru­legu máli, hækka og lækka takkana og stöðvartakkana. Geri aðrir betur.