Nýjar reglur tóku gildi á miðnætti um sóttkví en reglurnar hafa verið að þvælast fyrir mörgum.
Á vef Stjórnarráðsins segir:
Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða enn fremur undanþegin smitgát. Breytingarnar taka gildi á miðnætti.
Andri Heiðar Kristinsson deilir hins vegar einfaldri mynd á twitter til að skýra þetta betur fyrir þjóðinni en höfundur „ákvörðunartrésins“ er óþekktur að hans sögn.
Hægt er að sjá myndina hér að neðan.
Eru reglurnar nokkuð orðnar of flóknar? 🙈 (höf. óþekktur að þessu frábæra ákvarðanatökutré) pic.twitter.com/g9VUpFc3YS
— Andri Heiðar Kristinsson (@andriheidar) January 26, 2022