Mynd dagsins: Felix og Baldur tilbúnir fyrir kvöldið

Eurovision lag Daða og Gagnamagnsins, 10 years, verður frumflutt á heimavelli íslenskra Eurovision-fara í kvöld klukkan 19.45 en mikil spenna er meðal Eurovision aðdáenda fyrir laginu.

Daði Freyr er ekki síst spenntur fyrir kvöldinu en hann deilir spennu sinni með fylgjendum á Twitter.

Eurovision-spekingurinn Felix Bergsson og eiginmaður hans, Baldur Þórhallsson, virðast einnig verið tilbúnir fyrir kvöldið en Felix birti við færslu Daða mynd af þeim Baldri í sínum eigin Gagnamagns-peysum.

Myndina má finna hér fyrir neðan.