Óhætt er að segja að heimilisfólki í Hafnarfirði hafi brugðið fyrir skemmstu þegar þeim varð litið undir rúm dóttur sinnar. Þar lá stærðarinnar rotta dauð á gólfinu.
Það skal strax tekið fram að um ósköp venjulegt íslenskt heimili er að ræða og ekki hægt að kenna óþrifnaði eða einhverju slíku um. Telja húsráðendur, sem búa miðsvæðis í Hafnarfirði, að heimiliskötturinn hafi komið með rottuna inn og skilið hana eftir undir rúminu.
Rottur hafa haft búsetu á Íslandi frá 18. öld að minnsta kosti og er reynt að halda stofninum niðri eftir bestu getu, meðal annars með því að setja eitur í brunna. Gömul og brotin klóakrör eru helstu búsetuskilyrði fyrir rotturnar og geta þær vissulega laumast inn til fólks ef þær finna þef af einhverju ætilegu.
Þá eru kettir mjög áhugasamir um mýs og rottur og reyna oftar en ekki að „gleðja“ eigendur sína með því að færa björg í bú eins og sennilega hefur gerst í þessu tilviki.