Inga Auðbjörg Straumland formaður Siðmenntar á mynd dagsins en þar sýnir hún fallegt tré í Reykjavík sem er heldur betur vannýtt á miðju bílastæði.
„Fallegasta tré Reykjavíkur. Og við notum það sem skyggni fyrir Hondur og Hyundai, frekar en hunda og hjónavígslur, lautarferðir og hádegislúra,“ skrifar Inga.