Mynd dagsins: Eyþór Arnalds kíkir inn um gluggann

Í sumar hafa 16 metnaðarfullir og frábærir listhópar unnið að nýjum verkum ásamt Götuleikhúsi Hins Hússins 2021 og fór uppskeruhátíð þeirra fram í gær undir nafninu Vængjaslættir.

Reykjavíkingar létu sig að sjálfsögðu ekki vanta og kíktu á nýjustu verk ungra listamanna í borginni.

Eyþór Laxdal Arnalds, tónlistarmaður og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mætti á svæðið og kíkti á menninguna í miðbæ Reykjavíkur. Hér má sjá stjórnmálamanninn kíkja á listakona sem stillir sér upp í búðarglugga á Bankastræti.