Mynd dagsins: Er þetta ljótasta og ó­smekk­legasta hús Reykja­víkur?

Illugi Jökuls­son, þjóð­fé­lags­rýnir, rit­höfundur og fyrr­verandi blaða­maður, á mynd dagsins í dag en hann er allt annað en sáttur með götu­myndina á Þing­holts­stræti.

„Er þetta ljótasta, ó­­smekk­­legasta og út í höttasta hús Reykja­víkur? Inn í heil­­lega og fal­­lega götu­­mynd Þing­holts­strætis kom þetta skrímsli fyrir fá­einum ára­tugum. Hverjum datt þessi ó­­­skapnaður í hug, og það á þessum stað? Má ekki bara rífa þetta?“ spyr Illugi á Face­book.

Fjöl­margir tjá sig undir færslu Illuga og eru ekki allir sam­mála honum. „Lík­lega fínt að vera þarna inni,“ skrifar sjón­varps­maðurinn Egill Helga­son.