Mynd dagsins: Er Lauga­vegurinn búinn að vera?

Mynd dagsins, eða kannski öllu heldur myndir dagsins, að þessu sinni tók veitinga­maðurinn Ólafur Örn Ólafs­son á Lauga­veginum um helgina.

Lauga­vegurinn hefur verið tals­vert í um­ræðunni undan­farin misseri. Sumum finnst að þrengt hafi verið of mikið að einka­bílnum með því að breyta Lauga­veginum í göngu­götu, á meðan aðrir fagna því að gangandi veg­far­endum sé gert hærra undir höfði.

Þeir sem til­heyra fyrri hópnum hafa margir talað um að búið sé að breyta Lauga­veginum í hálf­gerða drauga­götu. Fólk fari frekar í verslunarmiðstöðvar þar sem hægt er að leggja bílum sínum beint fyrir utan og ganga svo inn í hlýjuna. Sú er þó ekki raunin ef marka má myndirnar sem Ólafur Örn, mat­reiðslu­meistari og einn eig­enda Vín­stúkunnar tíu sopar, birti á Face­book-síðu sinni.

„Það kemur aldrei neinn á þessa göngu­götu, sögðu þeir. Það er allt­of kalt til þess, fólk vill vera inni í bílunum sínum, sögðu þeir. Rangt! Segi ég,“ segir Ólafur en myndirnar voru teknar á laugar­dag, 14. nóvember, og nefnir hann að hita­stigið úti hafi verið 0 gráður.

Það kemur aldrei neinn á þessa göngugötu, sögðu þeir. Það er alltof kalt til þess, fólk vill vera inni í bílunum sínum, sögðu þeir. Rangt! Segi ég Tekið í dag. 14. Nóv. Hitastig 0 gráður

Posted by Ólafur Örn Ólafsson on Laugardagur, 14. nóvember 2020