Justin Trudeau hefur setið sem forsætisráðherra Kanada frá árinu 2015 og er einn af vinsælli stjórnmálamönnum heims. Hann fæddist á jóladag 1971 og verður því fimmtugur á næsta ári. Eða hvað?
Á Facebook síðu veftímaritsins Lemúrinn er birt mynd af ónefndum bónda en myndin var tekin af dönskum hermanni og fornleifarfræðingi seint á nítjándu öld, eða í kringum árið 1898, í Skógum í Austur-Barðastrandarsýslu.
Myndinni er skeytt saman við mynd af Trudeau og er óhætt að segja að líkindin séu sláandi. Fjölmargir hafa brugðist við myndinni og hafa á annan tug deilt færslunni. Til að mynda er henni deilt inn í hópinn Barðaströnd.
Það kom þar fljótt í ljós að ekki var um að ræða ónefndan bónda en nokkrir hafa komið því á framfæri að um sé að ræða Ísak Snæbjörnsson, bónda á Skógum í Þorskafirði.
Þrátt fyrir að ráðgátan virðist vera upplýst er engu að síður merkilegt að sjá samanburðinn en færsluna má sjá hér fyrir neðan.