Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, vill að herflugvél sem stendur sem minnisvarði við Ásbrú á Reykjanesi verði tekin niður. Hann birtir þessa mynd og segir:
Er ekki hægt að taka þetta ógeð niður? Þetta er það fyrsta sem mætir hælisleitendum uppi á Ásbrú sem eru t.d. að flýja stríðsrekstur Bandaríkjanna. Svo er þetta bara almennt ósmekklegur minnisvarði. pic.twitter.com/LxnYVAigei
— óskar steinn (@oskasteinn) February 6, 2022
„Er ekki hægt að taka þetta ógeð niður? Þetta er það fyrsta sem mætir hælisleitendum uppi á Ásbrú sem eru t.d. að flýja stríðsrekstur Bandaríkjanna. Svo er þetta bara almennt ósmekklegur minnisvarði.“
Hefur færsla hans vakið mikla athygli á Twitter.
Oddur nokkur segir þetta ekki versta minnismerkið á svæðinu:
„Byrjum á að taka þetta ógeðslega mural af Jóhannesi páfa af kirkjubygginunni. Hann er ekki einusinni hluti af sögunni þarna. Bara einhver kynferðisafbrotamannakóari. Utan á kirkju sem var byggð fyrir alla, ekki þrotið sem sú Kaþólska er. Fyrir utan það síðan hvað þetta er fugly.“
— óskar steinn (@oskasteinn) February 6, 2022
Það eru alls ekki allir sammála, þar á meðal Andri nokkur sem segir:
„Þetta er bara partur af sögu svæðisins og mér finnst bara sjálfsagt að leyfa henni að vera þarna.“
Annar segir: „Alltaf eitthvað að væla yfir, það er eins og það er.“
Óskar Steinn er með lausn á þessu: „Er ekki bara hægt að fara með þetta inn í eitthvað flugskýli inni á öryggissvæðinu svo liðsmenn hersins geti sjálfir dáðst að þessu.“