Mynd dagsins: Emmsjé Gauti lætur gott af sér leiða

Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, er fyrirmynd í augum margra af ungu kynslóðinni og hann hefur heldur betur látið gott af sér leiða að undanförnu.

Gauti birti mynd á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann stendur fyrir utan Fellaskóla í Fellabæ, en það er skóli númer hundrað sem hann heimsækir með Geðlestinni.

Eins og Gauti segir við myndina er Geðlestin geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla.

„Almennar pælingar og umræða um andlegu hliðina sem við gleymum oft að sinna. Við ferðumst nokkur saman, tölum um starf Rauða krossins, Geðhjálpar og svo segir manneskja söguna sína sem tengist andlegum áskorunum. Í lokin eru svo örtónleikar til að hafa gaman og rappa smá rapp,“ segir Gauti sem bætir við:

„Þetta verkefni er búið að gefandi og ég er þakklátur að fá að taka þátt í því. Þörf umræða eftir þungan vetur. Ég er búinn að hitta endalaust af æðislegu liði og kynnast stöðum á landinu sem ég hef ekki komið á áður. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og er styrkt af félags- og heilbrigðisráðuneytunum.“