Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, var uppnefndur „draumaprinsinn frá Vestmannaeyjum“ í pistli sem Guðmundur Oddgeirsson, bæjarfulltrúi O-listans og frambjóðandi Íbúalistans, skrifaði og fékk birta á vef Hafnarfrétta í gær.
Elliði hefur húmor fyrir sjálfum sér og birti hann afar skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í morgun sem hann fékk senda. Við myndina segir hann:
„Ég elska húmorinn í Þorlákshöfn. Í gær uppnefndi frambjóðandi íbúalistans mig "draumaprinsinn úr Vestmannaeyjum" (sjá grein á hafnarfréttum), í morgun sendi íbúi í Þorlákshöfn mér þess mynd.“