Andrea Sigurðardóttir á mynd dagsins þar sem hún gerir létt grín af leikskólamálum í Reykjavíkurborg sem eru vægast sagt á slæmum stað. Fjöldi foreldra og ungra barna komu saman í ráðhúsi Reykjavíkur í gær, fyrir fund borgarráðs, til að mótmæla úrræðaleysi í dagvistunarmálum í borginni en foreldrarnir bíða þess að fá pláss á leikskóla fyrir börn sín.
Andrea deilir mynd af Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttakonu á Stöð 2 sem fjallaði um leikskólamálin í gær. Elísabet er þar hendinni uppi og lítur út fyrir að hún sé að gefa merki með löngutöng en það mun að öllum líkindum ekki vera viljandi.
Elísabet Inga er ekki sátt með stöðu leikskólamála í borginni 🤍 pic.twitter.com/j473dMUwpN
— Andrea Sigurðardóttir (@andreasig) August 12, 2022