Mynd dagsins: Ekki opna fyrir þeim! Sá minni mögu­lega klæddur sem lög­reglu­þjónn

„ATH! Ekki opna fyrir þessum tveim, þetta eru glæpa­menn.“

Svona hefst skemmti­leg færsla sem birtist inn í Face­book-hópi íbúa í Lang­holts­hverfi, en með færslunni fylgdi mynd af tveimur kunnug­legum and­litum.

„Sá minni gæti mögu­lega bankað uppá klæddur sem lög­reglu­þjónn og komist þannig inn, en það er bara til að sjá hvað þið eigið og mögu­lega kemst húsið ykkar þá á “hit” listann,“ segir enn fremur í færslunni.

Eins og glöggir les­endur taka eftir eru þetta leikararnir Joe Pesci og Daniel Stern sem léku heldur ó­heppna inn­brots­þjófa í Home Alone-myndunum, ein­hverjum vin­sælustu jóla­myndum sögunnar. Kevin litli, sem leikinn var af Macaulay Cul­kin, sá við öllum þeirra til­raunum með eftir­minni­legum og spreng­hlægi­legum hætti.

Í­búar í Lang­holts­hverfi – eða öðrum hverfum borgarinnar – þurfa því ekki að hafa varann á sér ef þeir sjá þessa tvo á vappinu.