Lögreglan hefur eftirlit með því að ökumenn fari eftir ýmsum reglum í umferðinni en lögreglan á Suðurnesjum ákvað að birta ein tilmæli á Facebook síðu sinni í gær.
„Ekki láta þetta gerast fyrir þig.... gefðu stefnuljós,“ segir í færslu lögreglunnar og með fylgir mynd af stefnuljósarofa sem virðist ekki hafa verið notaður í langan tíma þar sem köngulóarvefur var búinn að myndast um hann.
Um mikillvægt ráð er að ræða þar sem ökumenn sem ekki gefa stefnuljós geta átt von á sekt en reglur um notkun stefnuljósa má sjá á vef Samgöngustofu.