Ótrúleg mynd náðist úr umferðinni nú síðdegis sem Tómas Steindórsson deilir á Twitter. Þar sést ökumaður bíða á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Síðustu ár hefur verið bannað að beygja til vinstri af Bústaðavegi á morgnanna og síðdegis til að umferð gangi hraðar. Stór skilti eru víða sem eiga að tryggja að allir ökumenn séu meðvitaðir um það. Ekki hefur þessi ökumaður náð skilaboðunum.
„Þessi er víst búinn að vera þarna frá því kl 15, ekkert stress samt, bara vera rólegur, veit að það kemur grænt kl 18,“ segir Tómas á Twitter.
þessi er víst búinn að vera þarna frá því kl 15, ekkert stress samt, bara vera rólegur, veit að það kemur grænt kl 18 pic.twitter.com/77SFmtDdpk
— Tómas (@tommisteindors) February 2, 2021