Mynd dagsins: „Eitt það fal­legasta sem ég hef séð í dag“

Mynd dagsins að þessu sinni birti þing­konan Rósa Björk Brynjólfs­dóttir á Twitter-síðu sinni.

Eins og fjallað hefur verið um er Rósa fyrsti flutnings­maður þings­á­lyktunar­til­lögu þess efnis að bjóða til Ís­lands í þungunar­rof er­lendum konum sem búa við stranga lög­gjöf í sínum heima­löndum. Hefur til­lagan verið sögð helst miðast við konur frá Pól­landi og Möltu.

Myndin vísar ein­mitt til þessarar til­lögu Rósu en hún sýnir borða sem búið er að hengja upp á göngu­brú yfir Kringlumýrarbraut. Á borðanum stendur orð­rétt: „Pólska sam­fé­lagið á Ís­landi þakkar fyrir stuðninginn við mann­réttinda­bar­áttu pólskra kvenna.“

Rósu hlýnaði um hjarta­rætur þegar hún sá skila­boðin og sagði á Twitter:

„Þetta er eitt það fal­legasta sem ég hef séð í dag. “Pólska sam­fé­lagið á Ís­landi þakkar fyrir stuðning við mann­réttinda­bar­áttu pólskra kvenna” Ég styð ykkur alla leið!“

Meðal þeirra sem skrifa at­huga­semdir við færslu Rósu er Gísli Marteinn Baldurs­son, sjón­varps­maður og fyrr­verandi borgar­full­trúi. Hann segir: „Vorum að kveðja eina dá­sam­lega kaffi­baristu af Kaffi Vest sem er búin að vinna hjá okkur lengi. Er að fara að opna eigið jóga stúdíó. Hún og vin­konur hennar, pólskar, sem allar sjá fram­tíð sína hér á landi, líta á þig sem al­gjöra hetju Rósa. Báðu mig um að skila því til þín.“