Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, deildi áhugaverðri mynd á Facebook-síðu sinni í gærmorgun.
„Ég vaknaði hress og kátur eins og flesta morgna þótt ég sé að verða 66 ára en það dofnaði umtalsvert yfir mér þegar ég opnaði póstinn frá Landssambandi eldri borgara. Er ímynd eldri borgara í umferðinni virkilega svona,“ spurði Eiríkur og birti meðfylgjandi mynd.
Á myndinni má sjá bækling frá Landssambandi eldri borgara þar sem sjá má leiðbeiningar og góð ráð fyrir eldri ökumenn. Myndin á forsíðunni er athyglisverð, en þar má að líkindum sjá hjón á besta aldri með pottaplöntur á þakinu.
Færsla Eiríks vakti þó nokkra kátínu hjá fylgjendum Eiríks og voru ófáir sem freistuðu þess að svara spurningu hans, hvort ímynd eldri borgara í umferðinni væri virkilega svona.
„Jóhanna Sigurðardóttir kominn með karl, en þó enn við stýri,“ sagði Reynir Þór Eggertsson, Eurovision-spekingur með meiru, og uppskar býsna mörg „læk“.
Aðrar athugasemdir voru einnig nokkuð skemmtilegar:
- „Mér hefur einmitt sýnst að allir eldri borgara aki almennt um með pottaplöntur á þakinu. Hverskonar plöntur ekur þú helst með um bæinn?“
„Mér sýnist þetta vera ungleg kona um sjötugt með sinn eðlilega háralit sem hefur skutlað föður sínum á tíræðisaldri í Garðheima að kaupa kálplöntur til að planta út í grænmetisreitinn. Til fyrirmyndar!
„Karlinn hættur að keyra! Eins og gott að konan hafi bílpróf! Og auðvitað er gamalt fólk hjón.“
„Athygli mín beindist nú aðallega að plöntunum á þakinu. Þetta hlýtur að eiga að sýna gleymsku ykkar gamalmennanna, eða hvað?“