Mynd dagsins: Einar hræddur um að þessi muni ekki eldast vel

Einar Þorsteinsson, formaður Borgarráðs og starf­andi borg­ar­stjóri, ræsti Reykjavíkurmaraþonið sem hófst í dag. Líkt og tíðkast gerist það með byssuskoti.

Mynd af Einari haldandi á skammbyssu hefur því vakið athygli á samfélagsmiðlum.

„Segðu þennan „er ekki bara best að kjósa Framsókn“ brandara einu sinni enn.“ skrifaði Twitter-verji nokkur.

Einar hefur séð þetta, og svaraði: „Þessi mynd gæti elst mjög illa…“