Mynd dagsins: „Ég virðist hafa gert þau mis­tök að panta mér pylsu með beikoni“

Fata­hönnuðurinn Guð­mundur Jörunds­son skellti sér á bensín­stöð og fékk sér pylsu ef dæma má myndina sem hann setti á twitter í dag. Hann virðist þó hafa beðið um beikon-pylsu sem er að venju vafinn með beikon­sneið.

Eitt­hvað hefur það mis­farist og skrifa Gummi: „Ég virðist hafa gert þau mis­tök að panta mér pylsu með kar­töflu­salati og beikoni en ekki beikonum“

En myndina má sjá hér að neðan.