Verðlagning í Góða hirðinum hefur vakið mikla athygli á undanförnum misserum. Hekla Elísabet vekur athygli á borði sem Góði hirðirinn hefur til sölu á vefsíðu þeirra.
„Glerplata smá rispuð“ og „smá skemmdir á fótum“ stendur í lýsingunni á vörunni. En eins og sjá má á myndunum er borðið töluvert rispað og skemmdirnar á fótunum þónokkrar.
„Bara smá, oggupons, sést varla á þessu ef þú pælir í því,“ segir Hekla Elísabet á Twitter.
„Ég veit ekki hvað Góði hirðirinn er að reykja þessa dagana en mig langar í,“ bætir hún við.
Færsluna og myndirnar af borðinu má sjá hér að neðan.
Bara smá 🤏 oggupons ☺️ sést varla á þessu ef þú pælir í því 🤔 pic.twitter.com/pVqQ8kXiSZ
— Hekla Elísabet (@HeklaElisabet) October 23, 2022