Þórdís Gísladóttir rithöfundur á mynd dagsins að þessu sinni en hún birtist á Twitter. Mikið hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og hafa gangandi og hjólandi vegfarendur margir kvartað undan slælegum snjómokstri.
Þórdís segist hafa skellt sér út í góða veðrið til að sækja vistir og lyf fyrir Covid-sjúka fjölskyldu þegar hún kom að nánast óyfirstíganlegum snjóskafli.
„Það er búið að ryðja gangstéttar á Snorrabraut en til að komast yfir á gangbraut þarf að böðlast í gegnum skafl. Ég stend með þér Reykjavíkurborg en þetta er eiginlega ekki hægt,” segir Þórdís og birtir mynd af skaflinum.
Fór út í góða veðrið til að sækja vistir og lyf fyrir covid-sjúka fjölskyldu. Það er búið að ryðja gangstéttar á Snorrabraut en til að komast yfir á gangbraut þarf að böðlast í gegnum skafl. Ég stend með þér Reykjavíkurborg en þetta er eiginlega ekki hægt. pic.twitter.com/7pXBtAAmwh
— Þórdís Gísladóttir (@thordisg) February 16, 2022