Mynd dagsins að þessu sinni birtist í Facebook-hópi íbúa í Langholtshverfi og sýnir umgengnina við einn af söfnunargámum Rauða krossins í hverfinu.
Slæm umgengni við opin svæði, nytjagáma og jafnvel ruslagáma er ekki ný af nálinni á Íslandi og virðist sumum fyrirmunað að skilja að ruslið á heima í ruslinni. Samt gerist það allt of oft að rusl er skilið eftir við gámana þar sem það gjarnan fýkur út um allt með tilheyrandi sóðaskap.
Sá sem setti myndina inn á Facebook-síðu íbúa sagði einfaldlega: „Ég spyr bara, hvað er að fólki?“